Gunilla Bergström fæddist árið 1942. Hún er alin
upp á listamannaheimili og sjálfmenntaður teiknari. Hún starfaði sem
blaðamaður fram til ársins 1975 þegar hún snéri sér alfarið að
ritstörfum. Síðan fyrsta bók hennar kom út árið 1971 hefur hún skrifað
og myndskreytt um 30 barnabækur Þekktastar þeirra eru bækurnar um Einar
Áskel.
Gunilla Bergström tekur lesendur sína alvarlega. Hún
skrifar um tilfinningar s.s. ótta, afbrýði, en þrátt fyrir að
umfjöllunarefnin séu alvarlegs eðlis er kímnin alltaf grunntónninn í
verkum hennar.
Bækurnar um Einar Áskel lýsa spennandi hvunndegi. Í
bókunum er sagt frá því hvernig hægt er að sigrast á ýmsum vandamálum,
og allt fer að lokum vel
Bækurnar um Einar Áskel eru sannarlega orðnar sígildar barnabækur nú
þegar. Stöðugt koma út nýjar útgáfur og þær eru efst á vinsældalistum
nær allra norrænna bókasafna.
Bækurnar um Einar Áskel hafa verið þýddar á yfir 30
tungumál, en auk þess hefur hann birst okkur í sjónvarpi og leikhúsi og
sönvar um hann hafa verið gefnir út á plötum.
Frá 1997 hefur Gunilla Bergström verið formaður sænsku
barnabókaakademíunnar.
Nánari upplýsingar er að finna á vef Einars Áskels.
Þar má finna flest það sem skiptir máli um þennan dáðadreng:
www.alfons.se